29.5.2009 | 07:53
Til hamingju fíflin ykkar...
Aldrei hef ég bloggað á fréttr áður, enda er þetta blogg er ekki fréttatengt blogg, en ég get ekki annað en óskað fíflunum til hamingju sem brostu út í hafsauga þegar nýja "frábæra" ríkisstjórnin tók við völdum. Hún er algerlega ráðalaus og augljóst að við, þ.e.a.s. landinn, fær það skemmtilega verkefni að borga fyrir kókaín- og frekjuhrokaflipp auðmanna.
Ég er ekki frá því að smygl við strendur Íslands eigi eftir að taka stórstígum framförum þó ekki væri nema í magni á áfengi og tóbaki vegna þessa, og svo auðvitað heimabruggið.... Ef einhver er að smygla benzíni til landsins, endilega sendið mér númerið svo að ég geti keypt og haft efni á að reka bíl þegar ég flyt heim...
Andskotans helvítis fokking fokk
|
Mjög óvinsælar aðgerðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook


rindpoop
sax
aslaugh
joningvar





Athugasemdir
ég tek undir helvítis fokking fokkið hjá þér en get líka sagt þér ef þú hefur ekki heyrt það að sjálfstæðisflokkurinn er landstærsti flokkurinn í skoðanakönnunum núna "er einhver hissa"
snorri (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 10:04
Hefur sjálfstæðisflokkurinn reynst þjóðinni svona vel? Og fengu þeir þó að taka við betra búi og höfðu lengri tíma en sú sem nú er við völd.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 29.5.2009 kl. 10:09
Helvítis fokking fokk.
Og já Anna .. Sjálfstæðisflokkurinn er 10x skárri en þeir flokkar sem eru við stjórnina núna. Samfylkingin ekki með nein ráð nema lengja í hengingarólinni og horfa á ESB sem töfralausn við öllu og Vinstri Grænir nota tækifærið og beygja sig undir Samfylkinguna í ESB málinu þvert á stefnu flokksins til þess eins að ná fram sínum "grænu" markmiðum sama hvað það kostar.
Jóhannes H. Laxdal, 29.5.2009 kl. 10:41
Æ já... ég hef enga trú á VG né Samfylkingunni lengur. Sjálfstæðisflokkurinn er þó hins vegar litlu skárri en stór haugur af skít og því ekki vænlegur kostur heldur, en samt sem áður er maður farinn að líta í þá áttina í fyrsta skipti á ævinni. Fyndið það.
Jón Flón (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 10:57
jæja Hjalti, þá ertu búinn að sanka að þér hálfvitum með því að blogga við fréttir. Sjáðu bara hérna að ofan, þar eru trúarhálfvitarnir mættir ( já þetta lið trúir líka á flokkinn sinn ) sem þykir auðvitað miklu betra að láta einhverja jakkafatalúða rota sig með golfkylfu heldur en að láta samfylkta vinstrigræningja slá sig í rot með skófluskafti. Hver er munurinn ? Þú verður hvort eð er rændur meðan þú liggur í rotinu.
old fart (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 10:59
Síðast þegar ég gáði, þá voru Samfylking, Sjálfstæði, Framsókn og Borgarahreyfingin öll að dufla við ESB. Aðgerðin sem farið var í gær hefði verið framkvæmd óháð því hver er í stjórn, N.B. enginn af sjórnarandstöðuflokkunum hefur sagt að þetta hefðu þeir ekki gert, bara að þetta sé vont, það vita allir að þetta er vont. Stjórnin getur vel breytt samsetningunni á útreikniformúlunni fyrir vísitöluna og þá hverfa vísitölu verðbólguáhrifin.
Andskotans endalausa væl, fullorðið fólk lætur eins og börn sem kvarta undan því að þurfa að borða siginn fisk þegar hart er í ári. Þetta eru allt kostnaðarliðir sem fólk með lágmarks sjálfstjórn og aga getur lifað við. Þegar að farið verður að höggva í hið raunverulega velferðarkerfi, þá verður kreppan fyrst sár. Sættið ykkur við það að val er ekki lúxus við búum við lengur, báturinn er lekur og það þarf að ausa, þeir sem eru við fulla heilsu og væla undan því að "taka til hendinni" því geta komið sér frá borði.
Kaus ekki þessa flokka sem eru í stjórn og hefði viljað sjá meira afgerandi aðgerðir fyrir löngu, en ég ætla ekki að lasta það litla sem gert er.
Ef menn og konur halda að kostnaðurinn við rúðuþurkuskiptin sé mikill, bíðið þangað til vélin verður tekin upp, þetta var bara lítið og sætt.
Bjorn Jonasson (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 11:17
Mig langar að taka fram af þessu tilefni:
Í fyrsta lagi: Mér finnst siginn fiskur góður.
Í öðru lagi: Bjór er fitandi, og benzín líka, betra að hjóla.
Í þriðja lagi: Það flokkast ekki undir væl að lýsa yfir vanþóknun sinni á meðan verið er að taka þjóðina hæææææægt og sígandi í rassgatið.
Og að lokum: Það er ekki að heyra að Bjorn Jonasson skuldi meira en hann á. Ennþá síður að hann sé atvinnulaus. En ef svo er, þá er auðvelt að ráða bót á því, breyta bara reikniformúlunni og viðmiðinu (samsetningunni!!!) þegar talað er um hve mörg prósent landsmanna eru atvinnulaus. Miða til dæmis við fjölda Íslendinga frá upphafi, það er ein leið. Þá hverfa atvinnuleysisáhrifin, ekki satt ?
drilli, 29.5.2009 kl. 13:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.